blogg þeirra léttgeggjuðu

November 21, 2008

Réttið upp hönd þeir sem eru að mygla?

Filed under: Uncategorized — ada9 @ 9:59 am

Ó mí gód! Djöfull er erfitt að læra núna! Orkan er búin og það er einhvern megin ómögulegt að reyna að byrja að læra aftur…… :s

Eftir að ég kláraði ritgerðina miklu í alþjóðastjórnmál á þriðjudaginn þá get ég ekki ekki byrjað á neinu öðru. Ég er bara alveg búin á því…síðan eftir að ég byrjaði að fara í ræktina kl. 6:30 á morgnana þá er dagurinn alltaf í rústi….síðan er ég alltaf með hita en samt ekki svona veik-hita…meira svona breytingarskeið-hita….notobene..ég er 22ja þannig að það er mjög ólíklegt að ég sé byrjuð á breytingarskeiðinu….MJÖG ÓLÍKLEGT!

“Meiri snjór meiri snjór MEIRI SNJÓR!!!” Ég er mega ánægð að snjórinn sé kominn og ég vona að hann fari ekki neitt! Ég þarf á snjó að halda ef ég ætla að lifa af prófin….já, btw. Ég er búin í prófum 9. des en þarf að skila ritgerð 15. des :( soldið súrt en ég fæ þó góðan tíma til að læra undir próf í staðinn fyrir að þurfa skila ritgerðinni 27. des.

Úff, ég ætla ekki að vera stressuð, ég ætla ekki að vera stressuð, ég ætla ekki að vera stressuð, ég ætla ekki að vera stressuð, ég ætla ekki að vera stressuð, ég ætla ekki að vera stressuð, ég ætla ekki að vera stressuð……ég er samt stressuð :s

Jæja! Núna er harkan sex! Ég vona að ég fari í gang í dag og dratti mér til að læra…..here’s to hoping!

Lag dagins er með Guano apes “Open your eyes”

November 15, 2008

Blessuð blíðan…….or is it?

Filed under: Uncategorized — ada9 @ 1:39 pm

Hahaha! Þið verðið að tjékka á þessu!
 http://www.youtube.com/watch?v=eZO3BlQGm…

Ef það kemur ekkert þá leiti þið á Youtube undir James Bond – Íslensk útgáfa….þetta er tær snilld!

Þetta hérna er líka snilld! http://vids.myspace.com/index.cfm?fuseac…

Jæja, ég er að fara að drepast eftir þessa helgi held ég bara, ykkur er öllum boðið í jarðaför 17. nóv kl. 15:03 í Kærleiksbirnakirkjunni í jarðaför mína….bannað að koma í svörtu.

Jæja, þarf að skila einni ritgerð varðandi hvort að hnattvæðing sé af hinu góða eða slæma….fyrst ætlaði ég nú að segja að hún væri góð en því meira sem ég les því meira er ég ósammála því :s Það er bara eitthvað búið að klúðra svo illalega öllum alþjóðamálum að maður verður svona smá svartsýnn :( Eins og hugtakið beri allt gott í sér þá er einhvern megin samt fullt af loopholes í henni þannig að þeir ríku og freku ná alltaf yfirhöndinni meðan þeir góðu og fátæku reka lestina. Maður missir smá vonina…

….en nóg með svartsýnina! Önnin er alveg að fara að klárast, prófin að skríða upp að manni, Kata mín fer að koma heim, ég er að fara bögga Maríu og Önnu meira, SLAKK er í fullu gangi, ég og Bjössi erum að kósýast, familíjurnar okkar eru alltaf mega næs að bjóða okkur í mat og ég er búin að losna við lubban! Þannig að ég get alveg verið bjartsýn og glöð og allt það ;)

Núna er ég á fullu! Þarf að taka ræktina með trompi og síðan að reyna að borða heilsusamlega…..það er erfiðara heldur en maður heldur :s Me LOVE chocolate! ;)

Strip

Lag dagsins er með Deat Cap for cutie og heitir “Summerskin”.

November 12, 2008

Finna sér kjól í krísunni….

Filed under: Uncategorized — ada9 @ 5:58 pm

..já, það er aðeins meira mál heldur en maður heldur :s

Núna er búið að tilkynna að þemi árshátíðar Politica er….are you ready…really, are you ready? okey….BOND! Núna er málið athuga hvort að Sean Connery sé ekki tilbúinn að vera date-ið mitt…ég meina..ef Bjössa er sama…..ég meina…common….Sean Connery…”shaken, not stirred”…hann er að verða áttræður kallinn og getur samt heillað gellur upp úr skónum….ja..og fleira ;)

Það er nú ekkert mál fyrir okkur stelpurnar að finna klæðnað! Þurfum bara að finna kjól sem er gólfsíður, gerður úr hágæðasilki, designers dress og síðan má ekki gleyma aukahlutunum eins og demöntunum og gucci eða chanel töskunni og náttúrulega stillettos skór! Síðan er alltaf gott að vera nú í wonderbra ;) ….ef fólk þekkir mig ekki þá skal ég gefa ykkur hint….þetta er kaldhæðni dauðans!

Eins og þið sjáið þá er ég ekki að nenna að læra…ekki að ég sé að læra beint leiðinlegt reyndar…
Ég held að þetta sé innbyggt í mann, um leið og maður þarf að læra mikið þá fer maður að slugsa eða gera bara eitthvað annað sem er svo “nauðsynlegt”.

Þið verðið að sjá þessi vids ef þið hafið ekki þegar séð þau! Ég og Bjössi lágum í kasti!!! Þið verðið að horfa á þetta í röð!  http://www.youtube.com/watch?v=WLG3S5WzH… -  http://www.youtube.com/watch?v=6lcmNaXmj…

Jæja, gera mig tilbúna að fara á SLAKK og éta á mig gat! Múhaha!

 

Strip

Lag dagsins er “Secret” með The Pierces, geggjað lag!!

November 11, 2008

Eru allir vikur fram að jólum vika myglunnar?

Filed under: Uncategorized — ada9 @ 11:20 am

Hæhæ og halló!

Er enginn annar myglaður? Mér finnst eins og ég sé ekki búin að sofa í svona…ja…eina og hálfa öld! ARG! Þetta er mega pirrandi….

Nokkur mál…….

Hvað er málið með að skjár 1 megi ekki lifa áfram? Það er kannski ekki gott fyrir mig að tala um þetta þar sem ég elska skjá 1 af öllu hjarta! Ég heiti Aðalheiður og ég er tv-junkie! Þorgerður Katrín….úff..ég má ekki segja meira um hana þar sem mér líkar svo hræðilega illa við hvernig hún fer með málin að ég ætla að stoppa mig af áður en ég fer að bölva eins og sjóari.

Ég held…….Ég held! að Íslendingar séu loksins aðeins að jafna sig, bara pínku. Þessi krísa er búin að taka sinn toll á alla og því ætla ég ekkert að tala meira um hana nákvæmlega þar sem allir vita af þessu. En vá hvað maður hefur tekið stressið og annað inn á sig! Ég er búin að vera í lamasessi síðan þetta byrjaði þar sem orkan er búin að vera svo neikvæð að hálfa væri nóg. Það er slæmt að fólk var að missa einhverja peninga en má ég minna það sama fólk á sem er að missa sig á fullu að svo lengi sem heilsan og fjölskyldan er í góðu lagi þá bjargast allt. Ég veit að það er erfitt að lifa án peninga en það er erfiðara að lifa án góðra vina, maka, fjölskyldu og annað sem gefur lífinu lit. Og þetta fólk sem var að kaupa sér allt á lánum og ekkert litlum! og síðan að kenna öllu öðrum en því sjálft…..takið ykkur aðeins til í andlitinu! Þetta er alveg jafn mikið þér að kenna hvernig fór fyrir þér eins og ríkinu og bönkunum. Fólk sem var að eyða umfram var ekkert að pæla í þessu! Var bara að eyða því að það gat eytt! Djæzes kræst! Hættið að kenna öllum öðrum um! Núna er málið að lyfta sér af rassinum og byrja á nýjum degi.

Það er auðvita hræðilegt að fólk sé að missa störfin sín en ég vona svo hjartarlega að það finni annað starf sem er þess vegna kannski meira gefandi. Það er allavega nóg af störfum í leiksskólum.

Ég var búin að spá fyrir því að þetta myndi gerast en ekki á svona stóran hátt, ég held reyndar að flestir voru búnir að undirbúa sig undir eitthvað svona á einvhern hátt. Ég held bara að engum datt í hug að þetta yrði svona stórt.

Nú ætla ég að segja eins og amma mín, fortíðin er fortíðin. Það er ekkert hægt að breyta henni en maður getur lært af henni til að gera nútíðina betri og undirbúið farsælan veg fyrir framtíðina.

En þetta krepputal…er hægt að tala um kreppu? Það vantar ekki vörur, heilbrigðiskerfið er í lagi, þeir sem áttu ekki hlutabréf eru með flest sitt bjargað og enn er hægt að kaupa aragrúa af óþarfa dóti.

Kæru Íslendingar….það er ekki hægt að tala um kreppu fyrr en á næsta ári. Það er ekki einu sinni víst að það verður kreppa. Við þurfum að muna að halda í vonina og bjartsýnina svo að börnin fara ekki hafa áhyggjur hvort að þau fá nesti eða ekki í skólan.

Að mínu mati er þetta allt saman lán í óláni. Ég hlakka til þessara jóla. Kannski verður þetta ekki neyslujól eins og seinustu ár heldur jól góðra anda og betri líða og samverustundar með fjölskyldu og vinum. Má ég minna á að það eru mun fleiri sem hafa það verra en við og við skulum ekki móðga þau með því að segja að við séum í slæmum málum og erum fátæk og hvað eina sem fólk er að þylja upp. HÆTTIÐ AÐ VÆLA! Ef kreppan kemur þá kemur hún. Íslenska þjóðin eins og ég þekki hana getur lifað allt af! Við erum sterk og þrjósk og látum ekki vaða yfir okkur…ja..allavega vonandi ekki lengur….og getum barist fyrir okkar rétti til að lifa. Fáninn okkar stendur fyrir hafi, ís og eld. Þetta er einhver sterkustu frumöfl jarðar, við skulum heiðra þjóðafána, land og forfeður okkar með því að sýna alheiminum í okkar hvað býr. Nú ætla ég að segja eins og amma mín, fortíðin er fortíðin. Það er ekkert hægt að breyta henni en maður getur lært af henni til að gera nútíðina betri og undirbúið farsælan veg fyrir framtíðina. Því segi ég….

ÍSLENDINGAR, ÁFRAM GAKK!

Theme pack from WPMUDEV by Incsub. Distributed by Dedicated Servers